VEISLUFERÐÁ VESTFIRÐI EÐA SUÐURLAND

Ferðin er fyrir alla vana og meðalvana sleðaferðalanga
Skráðu þig fyrir 18. mars

 

Nú líður að einni áhugaverðustu ferð vetrarins, helgina 26. – 28. mars næstkomandi.

Gistigjald fyrir helgina er ekki alveg klárt, en þetta verður mjög hagkvæmt fyrir budduna
Skráðu þig á tor@vortex.is eða hjá Atla í Stormi - (Skráning er staðfesting v/gistigjalds)



Dagskráin er áætluð svona:


Föstudagur 26. mars
Ekið til áfangastaðar sem verður tilkynntur í tölvupósti ca 23. mars
Kvöldið 26. mars Glatt á hjalla og óborganlegar sögur frá ýmsum uppákomum undanfarna
áratugina frá öðlingum í sleðasportinu.
Náttmál: Ekki á hreinu, en það fer eftir orku og úthaldi hvers og eins.


Laugardagur 27. mars
Ræst kl 7:00 - Skellt í sig morgunmat sem fólk sér um hvert fyrir sig og
hópurinn kominn á fönn ca kl 08:30.
Nestað fyrir daginn ásamt auka bensíni (ca 2 x 10 lítrar)

Þau svæði sem farið verður um í ferðinni eru mjög góð sleðasvæði, og er þá
sama hvor landshlutinn verður fyrir valinu.
Góðir og vanir leiðsögumenn verða í ferðinni til liðsinnis.
Áætlun í hús eftir daginn ca kl 18:00

Veislukvöld 27. mars
Skúli Karlsson í Stormi býður öllum ferðalöngum til ómótstæðilegrar
grillveislu frítt, þar sem ekkert er til sparað í frábærum mat, meðlæti og drykk
Ekki þarf að fjölyrða um þessa veislu fyrir þá sem til þekkja, en veislan er
frábær í alla staði.
Tími og upphaf veislunnar er óráðinn, en það fer bara eftir deginum í heild og
er ekki um neitt stress að ræða.
Búast má við fjörugum uppákomum um kvöldið, svo sem einstökum
rembusögum, sleðahúmor og þessu einstaka glensi sleðamanna .
Náttmál: Alls óvíst, en m.v. fyrri reynslu verður það frekar seint.

Sunnudagur 28. mars
Ræst kl 10:00 fyrir þá sem geta hreyft sig - Morgunmatur, ef lystin verður í lagi
Hópurinn kominn á fönn ca kl 11.00 og tekinn góður renningur.
Til baka úr renningi Ca 15:00 +
Skil húss og brottför CA kl 16:00 + (Þú ert vinsamlegast beðinn að taka til hendinni við frágang).


Skráðu þig á tor@vortex.is (sími 820 3227) eða hjá Atla í Stormi - (Skráning er staðfesting v/gistigjalds)

Skráning í ferð er í síðasta lagi 18. Mars nk




Polarisklúbburinn

Stormur ehf. I Kletthálsi 15 I 110 Reykjavík I Sími: 577-1717 I stormur@stormur.is