|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Næstkomandi miðvikudagskvöld, kl. 20:00, koma á fund hjá Ferða og útivistarfélaginu Slóðavinir þau Marta Jónsdóttir, lögfræðingur, og Kristófer Kristófersson, verkefnastjóri tæknimála, en bæði starfa þau hjá Umferðarstofu. Þau koma til með fjalla um öll þau mál sem snúa að skráningar og skoðunarmálum mótorhjóla, auk þess sem fjallað verður um breytingar á umferðarlögum og áhrif þeirra. Ásgeir Örn Rúnarsson, stjórnarmaður í Slóðavinum og nefndarmaður Tækninefndar félagsins, heldur erindi um raunveruleg áhrif regluverksins á umhverfi hjólafólks. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Arctic Trucks, Kletthálsi 3, og hefst eins og áður segir kl. 20:00 . Félagið kvetur allt áhugafólk að fjölmenna á fundinn. Okkur þætti ekki verra ef þú gætuð sent þennan póst áfram á þína vini og kunningja. Einnig væri gaman ef auglýsingin, hvort sem það er þessi texti hér að ofan eða myndin hér að neðan, rataði á heimasíður sem þér tengjast. Með kveðju og von um góða mætingu, Jakob Þór Guðbjartsson, formaður Frétt um viðburðinn er að finna á vef Slóðavina, www.slodavinir.org |
|---|
|
![]() |
|---|
Stormur ehf. I Kletthálsi 15 I 110 Reykjavík I Sími: 577-1717 I stormur@stormur.is |
|---|