Hjálparsveit Skáta Reykjavík í Jökuldölum 24 - 26 janúar

Félagar úr Hjálparsveit skáta Reykjavík fóru íæfingarferð í Glaðheima, í Jökuldölum með allt sitt beltadót: sleða, fjórhjól á beltum, snjóbíl og jeppa.

Á föstudag var veðrið ekki sem best og einhver slydda og snjókoma og lognið á mikilli hraðferð. Ekkert mál var að bruna á sleðum um Svartakrók í Glaðheima en etthvað lengri tíma tók fyrir fjórhjól, jeppa og snjóbíl að komast inneftir og skiluðu þeir sér í hús undir hádegi á laugardeginum.

Laugardagur var með frekar leiðinlegt veður en sunnudagsmorgun hreint frábær; 13 stiga frost og heiðbjartur himinn. Frábærar aðstæður og fóru menn út að keyra við topp aðstæður og áttu stórgóðan dag.

Eitt óhapp átti sér stað rétt sunnan megin við Vondugil en þar lenti vélsleðamaður í óhappi og reyndist nauðsynlegt að kalla til þyrlu til að flytja hinn slasaða. Lán var að hjálparsveitar skátarnir skyldu vera á svæðinu og lögðu þeir aðgerðinni lið með sínum mannskap og búnaði sem tókst vel. Ferðinni lauk um kl 11 á sunnudagskvöld og er óhætt að segja að menn hafi verið ánægður með hvernig til tókst.


kveðja
Gunni Vald.

Stormur ehf. I Kletthálsi 15 I 110 Reykjavík I Sími: 577-1717 I stormur@stormur.is