
Polaris kynnir fjögurra manna Razor - Robby Gordon Edition
Fyrir um níu mánuðum síðan tilkynnti Polaris um samstarf sitt við Robby Gordon og nú er afraksturinn af þessu samtarfi byrjaður að renna af færibandinu - Robby Gordon útgáfa af Ranger RZR 4. Bobby Gordon er goðsögn mikil úr vesturheimi sem keppir í Baja, Nascar og Indy 500 svo fátt eitt sé nefnt.
Ranger RZR 4 býr yfir öllum þeim eiginleikum sem Ranger RZR línan býður upp á og getur að auki borið fjórar manneskjur sem eykur enn notagildið. Ranger RZR 4 er með 800cc High Output Twin EFI vél sem er fremst í sínum flokki hvað varðar kraft með tilliti til þyngdar. Vélin er staðsett með þyngdarpunktinn eins neðarlega og mögulegt er á bak við aftursætin, sem gerir Ranger RZR 4 ákaflega lipran og auðveldan í akstri. Bíllinn vegur 569.3 kg sem er léttara en margir tveggja farþega bílar á markaðnum.
Nánari upplýsingar er að finna hér
Sjá myndband hér af græjunni í action
Verð og afhendingartími verður kynntur síðar


|