Við lögðum í hann á föstudagskvöldið frá Sigöldu og var þá mikil rigning og vatn á leiðinni. Við komumst þó inn úr smá blautir eftir að hafa fest nokkra sleða á leiðinni.
Á laugardagsmorgun var komin sól og blíða. Fórum við þá fyrst í smá rennig til að reyna að losa upp Patrolinn sem Broddi skálavörður hafði reynt að komast á inneftir en var skilinn eftir við staka fellið rétt fyrir neðan Bjallavað.
Margir úr hópnum þurftu svo að fara heim snemma á laugardeginum en við fórum ca 10 manna hópur í renning í Hrafntinnusker, yfir Torfajökul og að Strútslaug, inn Muggudali og komum niður Halldórsdalinn inn í Glaðheima og svo þaðan í Landmannalaugar eftir fjöllum og dölum.
Á laugardagskvöldinu var svo baðað, grillað, étið,,,,, og svo á endanum hrotið.
Þegar við vöknuðum á sunnudagsmorgninum, hafði snjóað heilan helling, sennilegaeina 20cm.
Við byrjuðum daginn á baði, átum restar frá grillveislunni og pökkuðum svo saman og keyrðum niður í Sigöldu, og nú með nýsnævi yfir öllum krapa og vatnspyttum.
Allt gekk vel og allir fóru glaðir heim eftir frábæra helgi.
Fleiri myndir hér frá Þór Ostensen er að finna hér
Kveðja Gunni Vald. |