Hann taldi að þeir hafi verið um tvær klukkustundir frá skála Arcanum við jökulbrúnina upp að eldgosinu. Þeir félagar höfðu um þriggja stunda viðdvöl við gosstöðvarnar. Þar fékk Jón Gunnar að hlýja sér inni í björgunarsveitarbíl, enda orðinn býsna kaldur.
„Strákarnir í björgunarsveitinni Stjörnunni vippuðu mér af hjólinu og inn í bílinn. Þar gat ég fengið mér kakó sem ég var með á brúsa og náð hita í kroppinn. Það var 9-10 stiga frost, ansi hvasst og mikil vindkæling.“
Ferðina fór Jón Gunnar á 35 ára afmælisdaginn sinn. „Ég varð hálfsjötugur, eins og góður vinur minn sagði. Hann er reyndar fyrrverandi vinur minn,“ sagði Jón Gunnar glettnislega.
Jón Gunnar er vanur útivistarmaður og stundaði mikið fjallgöngur og leiðsögn með ferðamönnum þar til hann lamaðist fyrir neðan mitti í bílslysi fyrir um þremur árum. Hann fór yfir hálendið í fyrrasumar á fjórhjóli og ræddi þá um að skipuleggja hálendisferðir fyrir lamaða. Kemur til greina að fara slíka ferð með lamaða að gosstöðvunum?
„Já, en ekki á fjórhjólum,“ sagði Jón Gunnar. „Það þarf að gera á breyttum jeppum.“ Hann segir að það sé of kalt að fara þetta á fjórhjóli og of mikil áhætta á þessum árstíma. Sjálfur var hann mjög vel búinn en varð samt kalt.
„Ég var í fernum buxum. Næst mér í ull, svo flís, svo einangruðum goretex buxum og í skel yst. Á fótum var ég í angora ullarsokkum. Svo venjulegum ullarsokkum og í sérstaklega einangruðum snjósleðaskóm. Ég var mjög kaldur þegar ég kom niður.
Hefði ég farið í venjulegum gönguskóm þá hefði ég örugglega komið kalinn niður. Það bjargaði hvað ég var ofboðslega vel klæddur,“ sagði Jón Gunnar.
Gríðarlegt fjölmenni var við gosstöðvarnar í gær þegar Jón Gunnar kom þar. Honum kom á óvart hvað nokkrir gestanna, þó mikill minnihluti, höguðu sér illa. Þetta fólk var að drekka áfengi, sinnti ekki tilmælum björgunarsveitarmanna og hagaði sér á mjög óábyrgan hátt.
Á endanum kom lögreglumaður með þyrlu til að koma skikk á málin. „Það kom mér á óvart hvað menn voru óskammfeilnir og óhlýðnir við björgunarsveitarfólkið. Það var það eina sem mér þótti leiðinlegt að sjá þarna uppi. En að sjálfsögðu var þetta minnihlutinn.“
mbl.is | 28.3.2010 |