Team LaVallee í US snjókrossinu í vetur

Levi LaVallee og Glen Kafka hafa sameinast í Team LaVallee sem taka mun þátt í US snjócrossinu í vetur. Team LaVallee samanstendur af fimmföldum Winter X gullverðlaunarhafa og margföldum meistara í ISOC Pro Stock, Levi LaVallee og Semi Pro ökumanninum Chris Kafka. Hópurinn mun keppa á öllum ISOC fylkiskeppnunum sem og á ESPN Winter X leikunum 2010.

"Ég get ekki beðið eftir að þetta tímabil hefjist. Með blöndu af góðum styrktaraðilum, ótrúlegri áhöfn og í samstarfi við Hentges Racing sem munu setja upp sleðana og viðhalda þeim tæknilega, held ég að við höfum öll efni á að vera bjartsýn í ár" segir LaVallee.

 

Fylgdarlið og áhöfn Team LaVallee's mun vera sú sama og hefur verið undanfarin ár undir stjórn Glen Kafka og vélvirkjunum þeim Terry Gilomen og Jeff Leffel.

Hópurinn mun gera út frá keppnisdeild Polaris Racing í Wausau, WI. Á meða styrktaraðila Team LaVallee 2009-2010 eru: Polaris, Parts Unlimited, National Guard, Woody's, Pure Polaris og margir fleiri.

Fyrir frekari upplýsingar - www.teamlavallee.com

Stormur ehf. I Kletthálsi 15 I 110 Reykjavík I Sími: 577-1717 I stormur@stormur.is